Umsókn um tengingu

Þetta umsóknarform er fyrir þá sem vilja innleiða rafræn skilríki til innskráningar eða bæði innsráningar og undirritanna.

Umsóknarformið er í eftirfarandi 7 skrefum:

  1. Upplýsingar um fyrirtæki
  2. Kennitala: Notuð til að sækja upplýisngar um fyrirtæki í fyrirtækjaskrá.
    Birtingarnafn: Það nafn sem birtist notendum í innskráningar- og undirritunarferlum. Nafnið verður að tengjast fyrirtækinu á skýran hátt og umsókn getur verið hafnað ef svo er ekki.
  3. Upplýsingar um lögbæran fulltrúa (Prókúruhafa)
  4. Kennitala: Lögbær fulltúi þarf að vera skráður með prókúru á fyrirtækið í fyrirtækjaskrá eða með umboð frá prófkúruhafa.
    Ef engar upplýsingar eru um prókúru í fyrirtækjaskrá þarf að sanna prókúru með örðum hætti.
    Netfang: Netfang er notað til að senda umsóknarskjal í rafræna undirritun.
  5. Upplýsingar um tæknilegan tengilið og samskipti
  6. Kennitala: Tæknilegur tengiliður er sá sem tekur við lyklum og fleiru frá Auðkenni.
    Netang tæknilegs tengiliðs: Notað til afhendingar gagna og tæknilegra upplýsingar varðandi uppsetningar.
    Netang fyrir tæknilegar tilkynningar: Netfang fyrir tilkynningar um uppfærslur, breytingar, þjónusturof, bilanir o.þ.h. (mælum með hópnetfangi)
  7. Móttaka reikinga
  8. Velja þarf hvort tölvupóstar eða skeytamiðanir (EDI) verði notað í fjárhagslegum samskiptum.
    Gefa þarf upp netfang fyrir fjárhagsleg samskipti (mælum með hópnetfangi)
  9. Tegund þjónustu sem óskað er eftir
  10. Velja þarf hvort sótt sé aðeins um innskráningarþjónustu eða bæði innskráningar- og undirritunarþjónustu
  11. Skilaboð eða athugasemdir umsækjanda
  12. Er eitthvað sérstakt sem þú vilt að komi fram varðandi umsóknina?
  13. Samþykki, skilmálar og vottun umsóknar
  14. Umsækjandi fer yfir umsóknina og verður að samþykkja almenna skilmála Auðkennis og vinnslu upplýsinga áður en hægt er að senda umsóknina inn.
    Sjá: Almennir skilmálar
    Einnig þarf lögbær fulltrúi að votta sig og samþykkja umsóknina með því að skrifa undir umsóknarskjal með rafrænum skilríkkjum sem sent verður á hann á það netfang sem var skráð í umsóknarformið.

Bæði almennar og ítarlegar tækniupplýsingar er að finna hér: Tæknilegar leiðbeiningar
Einnig er hægt að senda okkur tölvupóst á fyrirspurnir@audkenni.is eða hringa í síma 530-0000